Framfarir - hollvinafélag millivegalengda - og langhlaupara
Stofnun félagsins Í október árið 2002 komu saman nokkrir eldhugar og áhugamenn um millivegalengdir og langhlaup og stofnuðu hollvinafélagið Framfarir. Með stofnun félagsins vildu frumkvöðlarnir leggja sitt lóð á vogarskálar frekari framfara í lengri hlaupavegalengdum á Íslandi.
Markmið Aðalmarkmið félagsins er að vekja athygli á millivegalengda- og langhlaupum bæði sem íþróttagrein og tómstundagamni. Efla unglingastarf og skapa samstöðu meðal hlaupara í lengri vegalengdum, jafnt þeirra sem stefna á alþjóðleg afrek og hinna sem stunda hlaup sér til skemmtunar og heilsubótar. Til frekari markmiða má telja að verðlauna hlaupara fyrir góðan árangur og styðja við bakið á þeim fjárhagslega eins og félagið hefur bolmagn til. Bættur árangur á alþjóðlegum vettvangi er einnig mikið metnaðarmál Framfara. Efling fræðslustarfs og sameiginlegir fundir hlaupara og áhugafólks um hlaup er einnig á dagskrá félagsins. Einnig má telja að það gagnist öllum að skapa vettvang skoðanaskipta netleiðis og með sameiginlegum fræðslu- og spjallfundum, enda læri menn þannig hver af öðrum. Síðast en ekki síst má nefna eflingu á þátttöku beggja kynja og allra aldursflokka í almenningshlaupum en forvarnarstarf íþróttarinnar er þar hvað mest.
Stjórnir og nefndir Síðan félagið var stofnað hafa eftirfarandi einstaklingar setið í stjórn og nefndum félagsins. Rakel Gylfadóttir, sem var frumkvöðullinn að stofnun þess, Ágúst Ásgeirsson, Björn Margeirsson, Burkni Helgason, Fríða Rún Þórðardóttir, Gunnar Páll Jóakimsson, Jón Sævar Þórðarson, Ólafur Margeirsson, Sigurður Pétur Sigmundsson og Sveinn Margeirsson. Björn Margeirsson og Fríða Rún Þórðardóttir hafa gegnt embætti formanns.
|